bunny rabit

Rapit... boíng boíng

13.06.2007 16:08:46 / bunny-rabit

Hjááááállllppp

Elsku ástar Akureyringa rúsínubollurnar mínar.. málin standa þannig að ef ég finn ekki eitthvern til að vera hjá frá enda Júní.. þá fer ég heim... því að ég get bara verið hjá Helga frænda mínu þar til mánaðarmótin júní júlí... þannig ef þið vitið um eitthvað eða eruð með laust pláss... endilega hjálpið mér... ég vil ekki fara... látið mig vita... :D:D:D

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 21:37:38 / bunny-rabit

long time we seen

hehe... jæja.. það mætti nú eiginlega segja að það sé tími til kominn að blogga... ástæðan er sú að ég hef ekki komist á netið í langann tíma.. vegna flutninga...

 eins og þið vitið þá flutti ég af vistinni fyrir nokkrum vikum.. og fór í Þórunnarstrætið... var hjá konu þar og eitthverjum pólskum kalli... þau voru alldrei heima og ég er bara það mikil félagsvera að ég get ekki verið svona mikið ein.. ég sakna fjölskyldunnar svooooo ofboðslega mikið. . þannig að það endaði með því að ég hringdi í hann Helga Hrafn frænda minn og fæ að vera hjá honum og unnustu hans... ég var svooo feginn þegar hann sagðist ætla að leifa mér að vera hérna...
Ég er búin að vera hérna í hvað.. 1 og hálfann sólarhring og mér líður geggjað vel hér.. þau eiga yndislegann hund sem heitir Stubba... hún er allgjört krútt.
Ég fann það fyrst þegar ég flutti til þessarrar konu að ég fékk allveg þvílíka heimþrá.. en um leið og ég kom hingað þá var allt í lagi... en já... er líka byrjuð að vinna hjá Hlíð... sem er allveg geggjuð vinna.. er líka að vinna hjá Gallúp.. vildi ekki gefa það upp.. vildi fá smá aukapening til viðbótar... þannig ég fæ hellings pening í sumar.. þannig að ég þurfi ekki að vinna fyrri partinn af vetrinum... ætla að vera dugleg að vinna

en já... ætla að fara að dunda mér ekkað annað.. sí ja... bæbæ


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 22:41:10 / bunny-rabit

Prófatíð

jæja. .núna er prófatíð hérna á Akureyri... ég ákvað að blogga um Söguprófið sem ég var að taka í dag.... ég er búin að vera að læra alla vikuna... og gekk líka ekkert smá vel... en eins og þið vitið þá er ég lesblind og fæ því lengri próftíma og svona geisladisk þar sem allt er lesið upp fyrir mann... jæja.. en það var gert og hann Einar Sögukennarinn minn var að lesa upp... hann var greinilega að því heima hjá sér bara í rólegheitunum.. og var ekkert að spóla til baka eða byrja aftur þegar hann gerði mistök.... því þetta var nú ekkert svo langt próf þannig það hefði ekki verið svo slæmt að byrja aftur.. en nei nei.... alltaf þegar hann gerðir mistök þá fór hann bara að blóta á fullu... geggggjað finndið.... svona "æ nei nei andskotans helvítis"... ég lá í krampa í prófinu og fólk horfði á mig eins og eitthvað viðrini.. .ahhaha... ekkert smá finndið... svo heyrðist tíst í fleirum í prófinu sem voru líka með svona geisladiska þannig að eitthverjir höfðu fattað af hverju ég var að tísta... :P :D:D:D Allgjör snillt... en P.S. gekk geggjað vel á prófinu

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:19:05 / bunny-rabit

aukablogg

Þetta er pínu Aukablogg.. það er glænýtt blogg hérna fyrir neðan... Ég var bara að finna einn annann æðislegann söngvara ..

hann heitir KEITH URBAN... hann er svolítið krútt.. þannig endilega kíkið á hann...

Hérna sjáið þið hann

 

Chekkið á honum


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 19:45:05 / bunny-rabit

hæhæ

jæja.. löngu kominn tími á blogg...

Það er nú samt ekki mikið búið að vera í gangi hjá mér. Er bara á fullu að læra undir próf. Er í 2 prófum í næstu viku á mánudaginn og þriðjudaginn. Svo 22. maí í seinasta og þá byrja ég að vinna á Hlíð öldrunarheimilinu... það verður örugglega mjög lærdómsríkt. Þetta er eitt af því sem mig langar að prufa að gera, vinna með gömlu fólki. En ég ætla samt að halda vinnunni á Gallúp svona á kvöldin þegar ég er á morgunvakt á Hlíð. Það verður smá aukapeningur. þótt að það verði 100% skattur af því... það er í lagi.. það er svo vel borgað þarna.
Eins og þið vitið þá verð ég hérna á Akureyri í sumar. Komin með herbergi til að leigja og alles. Það verður svaka stuð þótt að maður sakni fjölskyldunni solldið mikið. En maður getur ekki búið hjá þeim að eilífu.

Ég er að fara í Sögu og dönskupróf í næstu viku.. þannig það verður allveg nóg að gera að læra í þessarri viku.. er sko komin með sistem... fer í sund og ræktina á morgnanna og svo læri til 18:00 á kvöldin og fer þá að vinna á Gallúp.. því ekki myndi neinn nenna því að vera að læra sólarhringunum saman... það vita það allir að það myndi enginn nenna því.

Þannig að ég verð pínu rík eftir þetta sumar vonandi. Verð allaveganna að fá eitthvern dágóðann slatta til að geta lifað veturinn af.. annað gengur ekki.

En já.. spurning dagsins... hún er : Hvað verðið þið að gera í sumar??

 Heyrumst... endilega muna að comenta og solleiðis


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 23:11:51 / bunny-rabit

leillegt

hæhæ fólks

Vitið.. það er ekkert gaman að blogga þegar maður veit ekkert af því að það er verið að skoða neitt af þessu... hvernig væri að segja hvað ykkur finnst...

 

en ég er núna heima á Grundó... Litla systa að fara að fermast á morgun.... svo er það nú spurning hvort að Skarphéðinn frændi komi hingað svo að ég fái far með þeim til baka á morgun.. nenni nefninlega ekki að fara með rútunni og þá myndi ég ekki fara fyrr en á mánudaginn og ég vil ekki skrópa meira...
En já... ég er komin með nýtt uppáháld.... Eins og þið vitið þá er ég mjög mikill country aðdáandi og nýjasta æðið er
Josh Tuerner.... ef hann er ekki hjartaknúsari þá er ég Svampur... hann er æðislegur.. sérstaklega í einu laginu sem heitir "would you go with me"... hann er frábær..

Heart melter :D:D

Svo eru nú prófin að fara að byrja svo maður þarf að vera mjög duglegur að læra... ég er það nú yfirleitt... auðvitað nennir maður því ekkert alltaf... en ég er svona yfir heildina mjög dugleg... á eftir að lesa aftur og aftur yfir 190 blaðsíður í Sögu og svo læra spænsku og dönsku.... EKKI LÉTT

En svo er ég að fara að hætta að borða nammi og hætta að borða hveitir og ger.... það er ekki gott fyrir mann.. ég er nefninlega orðin svo dugleg að hreyfa mig þannig ég verð að fara að laga mataræðið.... en já... svo er það Spurning vikunnar:

Hver eða hvað er ástin í lífi ykkar??

en núna er ég að fara aftur að snúa mér að lærdómnum... endilega kíkið á hann Josh Turner...

 

Ble ble og svara svo spurningunni

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 23:47:53 / bunny-rabit

fyrrverandi

jæja... núna til að lífka aðeins upp á einkalífð.. þá ætla ég að fara yfir alla fyrrverandi kærastana

 

Með þessum tvíburabræðrum (Maggi og Sibbi) missti ég meindóminn með bakvið fiskitank niðri á höfn í náttfötunum mínum. Allaveganna öðrum þeirra.. man ekki hvor er hvað þannig ég setti bara báða....en þeir komu illa fram við mig (aumingjar sem literly slefa):P

 

 

Hérna er augnindið hann Elías .... the sexyest ever you know... god hvað ég elskaði hann heitt... en það gekk ekki upp.. hann tók við ömmu vinkonu minnar.. helvítið tarnan

 

 

Hér kemur besta minningin mín... heitasti gaurinn sem ég var með... hitti hann á árshátið séð og heirt gellana... (þúst gellurnar sem eru alltaf aftast, ég og hann vorum ein af þeim)... en það gekk ekki upp, það komst í ljós að hann var ástfanginn af kjólnum, ég hélt að hann væri bara í uppáhaldi

 

og svo sá næstseinasti.. sætastur í heimiiiii... ohh hann Bush.. ég hélt að hann væri sá eini sanni.. en svo kom í ljós að hann væri giftur, með börn og forseti bandaríkjanna, þannig það gekk ekki upp :S synd

 

 

svog er það núverandi... ahh.. hann er nú allt í lagi... en enginn Bush...


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 21:34:55 / bunny-rabit

Fólk

ég nenni ekki að vera með neitt skemmtilegt hérna á síðunni ef þið segjið aldrei neitt um það sem ég er að skrifa... ég verð að fá hreynskilna dóma um þetta.. ég veit ekki hvort að ég sé að segja ekkað sem ykkur líkar ekki... endilega svarið þessu líka... Kv. anna

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 22:31:50 / bunny-rabit

long time we have seen...

Sæl og blessuð... fyrirgefiði að ég hef ekkert verið að blogga... það hefur bara verið svo rosalega mikið að gera hjá mér... ekkert nema kannanir í skólanum og vinna.

En svona smá af því sem ég hef verið að gera..

Er núna heima, kom í gær, óttarlega fegin að komast í smá frí til fjölskyldunnar. Fór í sund og solleiðis í dag með litlu sistkynunum.. obbosslega gaman.
Ég setti auglísingu í Dagskránna um herbergi til leigu í sumar og það eru 3 búnir að hringja :D:D ííííkkkk þannig ég verð 99% pottþétt hér.. tíhí... geggjað spennt... er að fara að sækja um vinnu hér og þar til þess að vera pottþétt á því að ég fái eitthverja vinnu í sumar til að safna upp smá pening fyrir veturinn. En einnig má ekki gleyma djamminu.. er einmitt að verða 18 í sumar og það á sko að sleppa sér... hehe.. nei segji svona... ættli nokkuð breytist...

En núna er aðal vandræðin hvað ég ætla að velja mér að læra næstu önn.... ég ætlaði alltaf á grunndeild rafiðnaðar en núna er kokkurinn rosalega spennandi... þannig þetta er soddið erfitt val. En það reddast... ætla að hugsa þetta yfir páskafríið og  ég læt ykkur vita hvað kemur í ljós.
En já.. litla sissa er að fara að fermast núna í enda apríl og hún og mamma eru að fara til njarðvíkur í myndatöku... ég bara því miður nenni ekki með.. ég sat í rútu í gær í 5 tíma og er ekki að nenna að sitja í 4 tíma framm og til baka frá RVK í viðbót... þannig ég verð bara á chilli hérna heima. Ætla að vera obboslega dugleg að lesa námsbækurnar því að prófin fara nú að byrja núna í maí.. þannig að maður þarf að fara að byrja að lesa sögubækurnar og æfa sig í dönski og spænsku... ó já... sérstaklega æfa sig í tungumálunum... er að skíta á mig í dönsku eins og vanalega en gegnur svona melló í spænsku.. gæti verið betra samt.

Ég er svo spennt fyrir sumarinu.. verða brún, geta verið úti í litlum fötum og djammað.... úúú ég er svo spennt... eruð þið ekki líka að kafna yfir því að það sé að fara að koma sumar:D:D:D:D:D  það er samt bara eitt sem er ekkert rosalega spennandi við það að verða 18... skatturinn hellist yfir mann eins og hrúga af grjóti... vá... skattkortið eyðist, þannig að maður fer alltaf að borga meiri og meiri skatt... ég er svo hrædd um að fá svo obboðslega lítið útborgað að ég eigi ekki eftir að geta lifað af næsta vetur.... ææ hvað er ég að bulla.. þetta reddast... hihi...

en ég er að fara að byrja með nítt thing hérna á blogginu mínu... sem er spurning vikunnar. hún kemur hérna inni í dagbókinni. og þið svarið henni í comentunum... þetta verða stuttar spurningar og endilega svaraaaa.. alltaf gaman að fá svona...Ég mun auðvitað líka alltaf svara...

Fyrsta spurningin er : Hverjar eru 3 leiðir til að komast að hjarta þínu.

hjá mér :  matur, píp og nammi :D:D

En já.. ég sit hérna inni í herberginu hjá mér að skrifa þetta.. en er að pæla í því að fara að skirfa pínu frétta- og pælingablogg... þannig adios untill next time :D:D:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 19:17:04 / bunny-rabit

Ballið og allskonar

Hellúúú´  Vááá hvað var gaman í gær... þetta var svo flott.. miklu flottara en þetta er á böllunum heima.... þriggja rétta máltíðir og borið til borðs... þjónar og allt... og svo var það snillt... Sonur hans Ladda var veislustjóri... svo var svo mikið af skemmtiatriðum... þetta var allt svo töff... ég var í flotta kínakjólnum mínum og með svona kínaprjóna í hárinu... svo voru allar hinar stelpurnar í svo töff kjólum.. .ég á örugglega eftir að setja myndir inn á síðuna..  :d  svo var myndatökumaður á staðnum og við fórum svo oft ég og helling af fólki og létum taka myndir af okkur.... svooo gaman.... Svo var það auðvitað ballið... hann jónsi var að spila... geggjað stuð.. en ég fór um 2 því að ég var svo þreytt í fótunum og líka það að ég þurfti að fara að vinna kl. Hálf 11... en það var allt í lagi að fara aðeins fyrr.. það var búið að vera svo gaman...

En svo má ekki gleyma því þegar ég, Dagný og Dísa vorum að undirbúa okkur fyrir ballið... hehe... þetta var svo misheppnaður dagur hjá henni greyjinu Dísu... æææ þetta er ekki gaman Dísa mín að lenda í svona hremmingum
L
... ógó ömó ég veit...
En þú varst svo sæt þannig að þetta reddaðist.... Og hún Dagný var í rosalega flottum kjól af ömmu sinni sem amma hennar saumaði á sjálfa sig fyrir mörgum tugum ára... hann passaði akkurat... Dagný er allveg eins í laginu og amma hennar þegar hún var yngri.. það er geggjað kúl... en kjóllinn var ekkert smá flottur...

Þegar maður gekk þangað inn í salinn... maður bara váááá.. þetta var allt svo flott... en verð samt að viðurkenna að maturinn var nú ekkert rosalega sérstakur.... ég fékk ekkert nema sinar og fitu... en sumir fengu góða bita. Þannig það var í lagi... en ég var að vonast eftir eitthverju geggjað góðu í eftirrétt en það kom ekkert... piff... ég fékk ekki einu sinni ís... ég hélt að það ætti alltaf að vera ís í eftirrétt.. en það er víst ekki rétt.. ég var geggjað fúl.... mi langaði í ís..
LLLL
...


En já núna.... ég þurfti að vakna kl. Hálf tíu og fara að vinna.. en það er í lagi.... en núna sit ég bara hérna í sófanum hjá Bubba dúllu og er að klappa Pabló og skrifa þetta.... búin að fara með hann út að hlaupa :D:D... horfði líka á Walk the line... æææ vá hvað er góð tónlist í þessarri mynd... endilega downloadið þessu lagi ef þið getið geggjað lag.... Time´s a wastin – Reese Witherspoon og Joaquin Phoenix – Walk the lina... ææææðiiii pææææððððiiii lag...
Er búin að vera að hlusta á það á reapet... en er að downloada nýjum lögum úr myndinni til að geta hlustað á eitthvað annað en sama lagið endalaust aftur og aftur... strákarnir eru að verða vitlausir á mér... :P:P
Var samt að komast að því að Reese Witherspoon er geggjað góð söngkona... datt aldrei í hug að hún gæti sungið svona vel.... :D:D:D hún er í uppáhaldi hjá mér núna...
 Er núna að horfa á Ace Vantura... :D:D En núna held ég að það sé komið nó... er að reyna að bæta það upp að ég er ekki búin að blogga nýlega... en endilega comenta líka :D:D:D

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 14:25:36 / bunny-rabit

spítali og allskonar

ÖHHHH... mér er svooo flökurt..   Var í þessarri magaspeglun í morgun... það gekk nú allveg ágætlega....solldið furðulegt ferli... er svona eins og ég sé með hálsbólgu núna... en annars bara pínu flökurt... ég ligg bara uppi í rúmmi hliðiná mömmu :D:D  Hún er nú reyndar sofandi... ... en svo byrjar þessi blessaði skóli aftur á morgun.. er búin að vera í eiginlega viku fríi af því að ég var heima og svoleiðis... en  það er ágætt skomm...

Svo þarf maður að vera duglegur að passa mataræðið og vera duglegri að fara í ræktina og auðvitað má ekki gleyma því að ég verð að vera svoooo miklu duglegri í því að læra.. þarf að fara að setjast allvarlega yfir þessarri spænsku... já það gerist núna á morgun...

en ég hef eiginlega ekki mikið meira að segja annað en að ég er að fara að leita mér að stað til að vera í sumar og svo auðvitað muna eftir að sækja um vinnu... vantar allmennilega vinnu.. vil hels vinna á hóteli... en það kemur allt í ljós... :D:D
  Cya... MUNA að kvitta  ble :D:D:D

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 20:04:39 / bunny-rabit

Anna verður á Akureyri í sumar :D:D:D

Humm..   Er að hugsa mig um hvort að ég ætla með í bæjinn á morgun eða ekki... mamma og Guðbjörg eru nefninlega að fara í eitthverjar búðir og ég nenni ekki búðarápi ef ég get ekki keypt neitt... er nefninlega fátæk núna.. þannig ekki gengur það...

En já.. dominos hringdi núna í dag að bjóða mér vinnu.. það er svo leiðinlegt að þurfa að bíða svona lengi eftir vinnu... ég sótti um fyrir mánuði síðan.. það er allveg fáránlegt hvað þetta tekur þá langann tíma... ég nefnilega sótti um hjá Capasent og byrjaði 2 dögum síðar... það er nú allveg ótrúlegt með þetta... en ástæðan  getur kannski verið að ég sótti um á netinu.. kannski tekur þetta miklu lengri tíma þannig... en ég er að fara að tala við kallinn á þriðjudaginn og gá hvað gerist.. kannski getur verið að ég fái bara aðra vinnu svona inni á milli þegar vantar... það yrði fínt að fá smá auka pening:D:D  

En já... ég kem aftur á Akureyri núna eftir 2 daga.. er eiginlega geggjað spennt... ætla að vera að læra á morgun og bara dúlla mér...
  Ég verð svo líklegast á Akureyri í sumar :D:D:D:D:D jeyyy.. ef ég finn eitthvern stað til að vera á ... ætla að auglísa mig sem svona heimilishjálp gegn því að fá herbergi eða kjallaraherbergi til að vera í.. :D:D:D   En þetta er komið nó í dag.. bæbæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 20:27:33 / bunny-rabit

28-29 febrúar og líka 1 mars

28. Febrúar   LEIÐIST   Mér leiðis... er að bíða eftir Siggu.. að hún hringi svo ég get farið að koma mér heim því mér LEIIIIÐÐIISSSTTT.... hef ekkert að gera.... Bubbi er í skólanum þannig ekki getur maður kallað í hann.. og allir aðrir auðvitað á þessum þemadögum sem auðvitað ég komst ekki á því að ég er að fara HEIMMM.. yeyyyy... :D:D:D:D

En já... ég hef ákveðið hérna með að gerast hörkubloggari... ætla að vera rosalega dugleg að hanga fyrir framan tölvuna og skrifa um allskonar bullirugl... þannig að þið fólk, ef ykkur leiðist þá endilega kíkið hingað inn....
En má ég spurja...eruð þið ekki að fíla þennann snjó í botn... þetta er æði pæði ég elska snjóinn.. svo gaman að fara út í garð að leika sér... fór einmitt með Pabló út að hlaupa um daginn eins og ég geri nú næstum því á hverjum degi.. :D:D æ hann er svo mikið krútt.. það er bara ekki hægt að segja nei við þetta krúttlega fés þegar hann hoppar og skoppar um gólfin í bjartsíni awwwww... En já... Við fórum út að hlaupa í svona hálftíma, hann er svo sætur í snjógallanum sínum... hann þarf nefninlega að vera í snjógalla svo að hann komi ekki sem einn snjóbolti til baka...  og svo dressaði ég mig upp í snjóbuxur og úlpu og allann gallann og við skelltum okkur út í garð og skemmtum okkur konunglega eins og lítil börn... en þegar okkur fór að leiðast þá bara köstuðum við snjóbolta inn og drógum Bubba út líka í snjókast.... vitið þið hvað... hann var blautari en allt... múhahaha.. svona er það að dressa sig ekki nógur mikið upp... en ég var upp dúðuð þannig ekki gat ég kvartað annað en að skórnir mínir urðu rennandi því að ég á enga kuldaskó.. bara strigaskó.. hef ekki efni á neinu þessa dagana....

28 – 29. Febrúar...
  Ég skrifa alltaf bloggið fyrst í word svo að það detti nú ekki út ef ég er að skrifa það beint inn á netið.... en núna er klukkan að verða hálf 12.. og er núna loksins komin heim.. stoppaði í varmalandi hjá Berglindi systur því pabbi var ekki kominn...
Núna er ég komin til mömmu og pabba og það er æði pæði... saknaði þeirra svo mikið... ég er að fara að sofa núna... fékk samt ekki að sofa í mínu eigin rúmmi því að mitt herbergi er fullt af fötum og dóti því það er svo mikið að gerast heima.. mamma og pabbi að setja upp nýjann fataskám, parketleggja hjá yngri sistkynunum og bara allt í gangi. Og það er auðvitað notað herbergið mitt og berglindar til þess að geyma allt þetta drasl. ... þetta er ekkert smá mikið...

En já.. ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera núna á morgun... eða tæknilega í dag afþví að ég er að skrifa þetta seint á miðvikudagskvöldi en ég kemst ekki í það að setja þetta inn á þessa síðu fyrr en næsta dag... nenni nefninlega ekki að tengja tölvuna við snúruna.... og er búin að slökkva á ráternum... þannig ég set þetta bara inn nokkrum klukkutímum seinna...æ það gerir ekkert til
  En núna kemur aðal dílið.... ég ætla að koma með allskonar nýtt dót inn á þessa síðu á næstunni.... einnig held ég áfram með fréttabloggið en einnig bætist við t.d. pælingarblogg og aðgerðarblogg... pælingar og fréttabloggið verða með sinn eigin tengil en aðgerðarbloggið og venjulega bloggið koma á forsíðuna um leið og þið skráið ykkur inn á þessa frábæru síðu.. verið nú dugleg að skoða... það verður alltaf eitthvað nýtt hérna á þessarri síðu....

en nú er komið nóg.. bæbæ

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 01:26:39 / bunny-rabit

mmmm

Heyriði

 Þessi helgi er búin að vera svooo mikil leti helgi að það er ekki finndið... bara hanga uppi í rúmmi, læra og ekkert... en það var samt ágætt í kveld... var heima hjá Valda og Bubba í pínu partyi því valdi á ammæli á morgun.. .eða tæknilega í dag.... :D Til hamingju  Þorvaldur... En já... Dísa var þarna og hún sýndi mér mynd af mér sem hún tók á öskudaginn og ef hún er ekki geggjað kúl þá er ég apaforfaðir.... en það er það eina sem mér lagaði að segja ykkur... :D:D

 

Photobucket - Video and Image Hosting

 Þessi mynd er tekin og photoshoppuð af henni Dísu skvísu... :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 23:58:26 / bunny-rabit

bland í fötu

AKUREYRIIIII   Loksins fékk ég tíma hjá lækni og er að komast í magaspeglun núna á þarnæsta mánudag.....

Ég ætlaði að fara heim um helgina, því það er svona 4 daga helgi núna... en neiiii auðvitað gat ég það ekki... þurfti að læra svo mikið, svo hringdi Klara yndi og bað mig um að passa litla æði pæðið hana Lindu Rós...
En ég kemst vonandi með Hafdísi næstu helgi heim, eins gott fyrir hana að fara :P jáwww. Hún fer... vona það allaveganna.. því mamma ætlar svo að koma með mér aftur til Akureyri því að ég er svo að fara í aðgerðina mánudaginn eftir og mamma ætlar að vera með mér:D:D:D jeyyyy.. fara að hitta mömmu og pabba... :D:D:D:D

En já... núna sit ég hérna uppi í rúmmi að dowloada lögum.. er einmitt núna að dowloada snilldar laginu með Holly Dolly – Dolly song .. mesta snillt í heimi... reyndar kom það fyrst á sjónarsviðið fyrir allnokkrum mánuðum síðan, en það er fyrst að verða vinsælt núna... hva rosalega er fólk eitthvað seint í því...

En já... morgundagurinn... það er frí og víst af því að ég fór ekki í heim þá skráði ég mig bara í vinnu um helgina nema á morgun því ég ætla að læra á fullu á morgun... þarf að fara að ná þessarri spænsku og ætla einnig að drífa þetta verkefni sem ég á að gera með Dagníu af sem við eigum að skila í næstu viku af..

DAGSKRÁ
 Vakna snemma ( á milli hálf 9 og 10)fara í morgunmat Fara í ræktinaÚt að hlaupa með PablóLæra, læra, læra, læra Spænska, stærðfræði og Saga  En núna ætla ég að fara að fara að sofa... ég fer að koma með fréttablogg.... ég lofa í seinasta lagi á morgun..  En já... það er 60 – 40 í skoðunarkönnunni og þið sem eruð ósátt við þetta skulið gjöra svo vel og skrifa í coment hver þið eruð og af hverju þið viljið ekki féttablogg.. ég er ekki að slúðra... ég er bara að segja frá... ég allaveganna er að passa mig að slúðra ekki.... þarf reyndar ekki að passa mig... geri það bara ekki.... En já... endilega látið mig vita... það gerist ekkert ef þið látið ekki heira í ykkur....  Góða nótt

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
RSS tengill
Klukkan